Hjálpum börnum heimsins
Kiwanisklúbburinn Eldfell- Félagar fróðari um Heimaeyjargosið 1973
17. febrúar 2012

Félagar fróðari um Heimaeyjargosið 1973

 
Zóphónías Pálsson, Eldfells-félagi, mætti með Pál föður sinn á fund klúbbsins í gærkvöld og erum við félagar afar þakklátir fyrir þann happafeng.  Við héldum að við vissum slatta um Heimaeyjargosið, en varð ljóst undir erindi Páls, að þar er langur vegur frá.  Það er ljóst að það eru ótrúlegar aðstæður sem mynduðust í Eyjum í gosinu og eiga þeir menn er þar stóðu vaktina í hamförunum, mikinn heiður skilinn.  Páll lýsti mjög vel öllu því sem þarna gerðist, hefði getað gerst og hvernig tókst að bjarga höfninni í Eyjum með hraunkælingu.  Eftirminnilegast segir Páll þó að hafi verið sá samhugur góðra manna sem þarna var staddur við að bjarga því sem bjarga þurfti og bjargað varð.
Viljum við Eldfells-félagar þakka Páli fyrir að koma í heimsókn til okkar með þennan skemmtilega og fróðlega fyrirlestur um fæðingu Eldfells !

Til baka