12. febrúar 2012
Kiwanisklúbburinn Eldfell hélt sinn annan þorrafund s.l. föstudag. Rúmlega 40 manns mættu á svæðið og er þetta stærsti fundur klúbbsins frá stofnun hans. Það verður auðvitað ekki látið þar við sitja og gert enn betur næst !
Margt góðra gesta komu á fundinn og voru þar á meðal fráfarandi, núverandi og verðandi umdæmisstjórar, Birgir Guðjónsson fráfarandi forseti Helgafells ásamt fríðu föruneyti frá Kiwanisklúbbnum Eldey. Voru Eldeyingum færðar gjafir af því tilefni að þeir verða 40 ára 14. febrúar n.k. og auk þess eigum við í Eldfelli og Helgafelli þeim að þakka að hafa hýst okkur á meðan Eldfell var græðlingsklúbbur Helgafells. Eldfell færði Eldey nýbakaða klukku úr gleri. Á henni mynd af eldspúandi Eldfellinu, nema hvað ? Berglind Kristjánsdóttir glerlistamaður gerði klukkkuna í síðustu viku og ljóst að þar er snillingur á ferð. Helgafellsfélagar afhentu þessa líka flottu ljósmynd Guðmundar Sigfússonar af Vestmannaeyjabæ þar sem við blasa bæði Eldfell og Helgafell í síðdegissólinni að sumri til.
Fráfarandi umdæmisstjóri afhenti Eldfelli stofnskjöl klúbbsins og klúbbfána og undirstrikaði þar með endanlega tilvist klúbbsins okkar í Kiwanisfjölskyldunni.
10 af stofnfélögum Eldfells fengu stofnfélagamerki sitt afhent af þessu tilefni.
Tveir nýjir félagar, þeir fyrstu til viðbótar við stofnfélaga, gengu í klúbbinn á fundinum, en það eru þeir Sigurpáll Bergsson, eiginmaður verðandi umdæmisstjóra, og Sigurjón Gunnlaugsson. Viljum við bjóða þessa góðu drengi velkomna í hópinn.
Þorbjörn Pálsson fékk smá glaðning frá félögum í tilefni af sextugsafmæli sínu.
Að sjálfsögðu var snæddur þorramatur auk þess sem Bergvin Oddsson "Beggi blindi" var með stórfenglegt uppistand og er menn mættu til fundar ómaði ljúfur harmonikkuleikur frá Friðriki Óskarssyni.
Fundurinn var hinn best og að mati stjórnar Eldfells, sá besti til þessa.
Stjórnin þakkar þeim er lögðu hönd á plóg og að sjálfsögðu öllum þeim góðu gestum sem létu sjá sig.
Myndir frá fundinum má finna í myndasafni síðunnar hér til vinstri.
Til baka