Hjálpum börnum heimsins

30.03.12

Atli Greifi kom sterkur inn

Atli Greifi kom sterkur inn
Atli Ásmundsson, kallaður "greifi", mætti á fund Kiwanisklúbbsins Eldfells í gær og flutti afar fróðlegt erindi um samfélag Vestur-Íslendinga í Kanada.  Atli er þar aðalræðismaður Íslands og veitti okkur félögum innsýn í heim sem lítið hefur verið skrifað eða fjallað um.  Hann lýsti því hvernig fjölskyldumeðlimir þurftu að kveðjast í túnfætinum vegna þess að ekki sást fram á að fólk gæti séð hverju öðru farborða hér á Íslandi.  Afar áhrifarík frásögn og hvetjum við hvern þann sem á þess kost að hlýða á Atla fjalla um þessi mál, að láta það ekki framhjá sér fara.
 
Myndir frá fundinum má sjá í myndasafni hér til hliðar.
 
Næsti fundur klúbbsins verður haldinn fimmtudaginn 12. mars n.k., en þá verður haldinn félagsmálafundur.

Meira


25.03.12

Fundur n.k. fimmtudag - Atli Ásmundsson

Fundur n.k. fimmtudag - Atli Ásmundsson
N.k. fimmtudag er fundur skv. dagskrá og er það Atli Ásmundsson sem mun vera með framsögu.  Fundurinn verður haldinn í húsnæði Opinna kerfa og hefst stundvíslega kl. 19:30.  Hér að neðan má lesa smá fróðleik um Atla.
 
Atli Ásmundsson er aðalræðismaður Íslands í Manitoba, en þar býr mikill fjöldi fólks af íslenskum ættum,
sem sýnir arfleifð sinni og sögu mikin áhuga og ræktarsemi.
Atli hefur haldið fyrirlestra um vestur Íslendinga á nokkrum stöðum á Íslandi við góðar undirtektir.
Fáir þekkja þau mál betur en einmitt hann.
Hann er fæddur og uppalinn í Eyjum, nánar tiltekið á Gjábakka vestra, sem stóð við Bakkastíg.
Hann stundaði hefðbundin Eyjastörf á sjó og í frystihúsum í uppvextinum og var mikið
í fótbolta og íþróttum með frekar lélegum árangri að eigin sögn og hætti fljótlega.
Fór eins og margir Eyjamenn á Menntaskólann á Laugarvatni .
Nam eitt ár við Edinborgarháskóla, en sneri sér síðan að kennslu.
Fyrst í Eyjum,en síðar á Hellu og á Reykhólum.
Réðist í utanríkisþjónustuna 1995 og fór til Manitoba 2004 og hefur verið þar síðan.
Atli er mikill áhugamaður um Vestmannaeyjar og ákafur IBV stuðningsmaður.

Meira


16.03.12

Félagar klárir á völlinn í sumar

Félagar klárir á völlinn í sumar
Í gær var Magnús Gylfason, þjálfari ÍBV, í heimsókn hjá klúbbnum.  Eftir góða kynningu hans á bakgrunni sínum, fyrri störfum fyrir ÍBV og fleiri lið sem við elskum minna, þá rigndu yfir hann góðum spurningum og gagnlegum ábendingum frá félögum.  Það er ljóst eftir þennan fund að félagar í Eldfelli eru klárir í fyrsta leik, sem einmitt verður á eins árs afmæli klúbbsins, þann 6. maí n.k.
 
Næsti fundur verður haldinn 29. mars n.k. en þá mun Atli Ásmundsson, aðalræðismaður Íslands í Manitoba, vera með okkur.  Atla munum við kynna betur hér á síðunni þegar nær dregur, en félagar eru hvattir til að taka með gesti á þennan fund.

Meira


08.03.12

Magnús Gylfason er næsti gestur Eldfells

Magnús Gylfason er næsti gestur Eldfells
Þjálfari karlaliðs ÍBV í knattspyrnu, Magnús Gylfason, mun stíga á stokk á næsta fundi Kiwanisklúbbsins Eldfells.  Magnús var hársbreidd frá því að gera lið ÍBV að Íslandsmeisturum sumarið 2004, en einmitt það ár hófst ótrúleg sigurganga Fimleikafélags Hafnarfjarðar, sem hampaði Íslandsmeistaratitlinum.  Nú höfum við tækifæri til að spyrja kappann hver markmiðin eru hjá liðinu á komandi sumri, hvort þjóðhátíðartjaldið hans sé í góðu lagi og eins hvort honum finnist skemmtilegra að þjálfa ÍBV en KR !!!
 
Við viljum hvetja félaga til að taka með gesti á þennan fund, enda styttist í knattspyrnusumarið.
 
Fundurinn verður að óbreyttu haldinn í húsnæði Opinna kerfa kl. 19:30 fimmtudaginn 15. mars.

Meira


27.02.12

Bjórskólinn á föstudag

Bjórskólinn á föstudag
Félagar í Kiwanisklúbbnum Eldfelli, ásamt gestum, munu setjast á skólabekk í Bjórskólanum n.k. föstudag.  Þrátt fyrir umbætur í þeirri iðju að væta kverkarnar með eðal-mjöð, þá hefur þessu skólahaldi verið haldið til streitu.  Kennarinn er Sveinn nokkur Waage, sem sjá má á myndinni sem fylgir fréttinni.  Sá sem er með honum á myndinni er fyrrum knattspyrnustjóri hjá Blackburn Rovers í enska boltanum en nafninu höfum við gleymt.  Sveinn er þessi til vinstri. 
 
Dagskráin er svohljóðandi:
 
Dagskrá fundar;
 
18:30 - Fundur settur í húsnæði OK
Boðið verður uppá koníaks lagaða sjávarréttasúpu og brakandi ferskt brauð.
 
 19:45 – Fundur færður frá húsnæði OK til Ölgerðarinnar þar sem Kiwanisfélagar setjast á skólabekk bjórskólans.
 
 20:00 – Sveinn Waage tekur við fundarstjórn.
 
23:30 – Fundi slitið.
 
00:00 – Framhaldsnámskeið í bjórdrykkju.
 
 
Gestir eru jafnframt velkomnir og geta félagar tekið þá með sér og eins geta gestir komið með að eigin frumkvæði með því að senda tölvupóst á netfangið eldfell2010@gmail.com
 
Allir félagar eru búnir að fá tölvupóst og eru beðnir um að staðfesta þátttöku á netfangið eldfell2010@gmail.com og eins ef menn sjá sér ekki fært að mæta að boða forföll.

Meira


17.02.12

Félagar fróðari um Heimaeyjargosið 1973

Félagar fróðari um Heimaeyjargosið 1973
Zóphónías Pálsson, Eldfells-félagi, mætti með Pál föður sinn á fund klúbbsins í gærkvöld og erum við félagar afar þakklátir fyrir þann happafeng.  Við héldum að við vissum slatta um Heimaeyjargosið, en varð ljóst undir erindi Páls, að þar er langur vegur frá.  Það er ljóst að það eru ótrúlegar aðstæður sem mynduðust í Eyjum í gosinu og eiga þeir menn er þar stóðu vaktina í hamförunum, mikinn heiður skilinn.  Páll lýsti mjög vel öllu því sem þarna gerðist, hefði getað gerst og hvernig tókst að bjarga höfninni í Eyjum með hraunkælingu.  Eftirminnilegast segir Páll þó að hafi verið sá samhugur góðra manna sem þarna var staddur við að bjarga því sem bjarga þurfti og bjargað varð.
Viljum við Eldfells-félagar þakka Páli fyrir að koma í heimsókn til okkar með þennan skemmtilega og fróðlega fyrirlestur um fæðingu Eldfells !

Meira


15.02.12

Páll Zóphóníasson gestur Eldfells á morgun, fimmtudag

Páll Zóphóníasson gestur Eldfells á morgun, fimmtudag
Páll Zóphóníasson verður gestur okkar Eldfells-félaga á fundi klúbbsins á morgun, fimmtudaginn 16. febrúar kl. 19:30. Að þessu sinni eru gestir velkomnir og geta fengið máltíð á 2.000 kallinn og hlustað á Pál. Páll er að okkar mati ein af ljósmæðrum Eldfells, enda gegndi hann miklu hlutverki í Eyjum á meðan á eldsumbrotunum stóð. Þeir sem hyggjast mæta og eru ekki félagar í Eldfelli, þurfa að senda skilaboð til Kiwanisklúbbsins Eldfells á  Facebook eða senda tölvupóst á netfangið eldfell2010@gmail.com áður en dagur rennur.
Félagar eru beðnir um að láta vita um forföll.

Meira


12.02.12

Flott þorrakvöld að baki

Flott þorrakvöld að baki
Kiwanisklúbburinn Eldfell hélt sinn annan þorrafund s.l. föstudag.  Rúmlega 40 manns mættu á svæðið og er þetta stærsti fundur klúbbsins frá stofnun hans.  Það verður auðvitað ekki látið þar við sitja og gert enn betur næst !
 

Meira


07.02.12

Þorrafundur Eldfells á föstudag

Þorrafundur Eldfells á föstudag
N.k. föstudag er þorrafundur Kiwanisklúbbsins Eldfells haldinn í húsnæði Kiwanisklúbbsins Eldeyjar í Kópavogi.  Heiðraðir verða þeir stofnfélagar sem ekki komust við stofnfund klúbbsins á aðalfundi Helgafells s.l. vor.  Fáni klúbbsins og stofnskjal munu verða afhent af þessu tilefni og mæta til þess verks bæði núverandi og fyrrverandi umdæmisstjóri ásamt föruneyti. 
Bergvin Oddsson mun verða með uppistand þar sem hann kallar sig "Beggi blindi".  Friðrik Óskarsson mun koma og spila á nikkuna sína þegar við mætum til fundar.  Félagar geta tekið með sér gesti og kostar það 3.500kr eða fyrir matarkostnaði. 
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku með tölvupósti á eldfell2010@gmail.com eða hringið í Jón forseta í síma 866-5755.

Meira


23.01.12

Heimsókn í varðskipið Þór - myndir

Heimsókn í varðskipið Þór - myndir
Eldfells-félagar heimsóttu varðskipið Þór s.l. fimmtudag og tók Sigurðuar Steinar Ketilsson skipherra á móti félögum.  Sýndi hann skipið hátt og lágt og bauð félögum uppá kaffi og sjónvarpsköku meðan þeir gripu tækifærið og héldu félagsmálafund í messa skipsins.  Myndir frá heimsókninni má finna í myndasafni síðunnar.
Bestu þekkir fyrir gestrisnina fá skipherra Þórs og forstjóri Landhelgisæslunnar.

Meira


19.01.12

Heimsókn í varðskipið Þór í kvöld

Heimsókn í varðskipið Þór í kvöld
Með ánægju ætlar stjórn að breyta um fundarstað í kvöld.  Við munum heimsækja hið nýja og glæsilega varðskip okkar Íslendinga, varðskipið Þór. 
Við höfum leitað færis á að heimsækja skipið góða undanfarnar vikur og í morgun hafði forstjóri LHG samband og tekur á móti okkur kl. 19:30 á morgun. 
Sigurður Steinar Ketilsson skipherra mun taka á móti okkur og byrja á smá skoðunarferð um skipið og geta menn spurt hann spjörunum úr.
 
Við fengum þær leiðbeiningar að til þess að komast inn á hafnarsvæðið, þarf að aka inn að vestanverðu við "Hafnarbúðir og Humarskipið" og þar er slá og bjalla sem á stendur  "LHG".
 
Viljum við fara þess á leit við félaga að mæta tímanlega þ.a. móttakan geti hafst á slaginu kl. 19:30.
 
Stuttur félagsmálafundur verður haldinn í messanum í varðskipinu og að því loknu munum við tölta yfir á Höfnina og borða þar góðan málsverð um ca kl. 21.

Meira


16.01.12

Félagsmálafundur á fimmtudag

Félagsmálafundur á fimmtudag
Fyrsti fundurinn á árinu 2012 er félagsmálafundur þar sem snókerfundi okkar var frestað í síðustu viku.  Við munum halda snókerfundi til streitu og verður hann væntanlega í næstu viku ef veðurguðirnir verða til friðs !
Fundurinn á fimmtudag verður í Opnum kerfum og hefst kl. 19:30.  Munum við fara yfir nefndastörfin og ræða það sem framundan er í dagskránni okkar, sem fer í póst til félaga á þriðjudag.  Leyninefnd, svokölluð pönnukökuhúsnefnd, hefur verið starfandi í haust og má sjá mynd hér með fréttinni af þeim Þorbirni og Andrési að vinna í nýjustu hugmynd sinni ásamt "ungfrú pönnuköku" sem notuð verðu í vörumerki þeirra félaga.  Biðja þeir pönnukökubræður að heilsa en annar þeirra ku baka pönnukökur og hinn borða þær og getið nú ! 
 
Að sjálfsögðu verður eitthvað ferlega gott í gogginn á fundinum þó ekki lofum við pönnukökum að þessu sinni nema bakarameistarinn verði í úber góðum gír á nýju ári !

Meira


29.12.11

Kiwanisklúbburinn Eldfells óskar ykkur öllum gleðilegra jóla og farsældar á árinu 2012 !

Kiwanisklúbburinn Eldfells óskar ykkur öllum gleðilegra jóla og farsældar á árinu 2012 !

Meira


05.12.11

Vel heppnaður jólafundur Eldfellsfélaga

Vel heppnaður jólafundur Eldfellsfélaga
Jólafundur Kiwanisklúbbsins Eldfells fór fram s.l. föstudagskvöld og herma heimildir að hann hafi farið mjög vel fram.  Reynsluboltinn Atli Þórsson kjörforseti klúbbsins stjórnaði fundi en tókst þó ekki að afstýra stórtapi þeirra eldri í spurningakepni kvöldsins.  Séra Ólafur Jóhann sá um að koma jólaandanum í húsið eins og honum einum er lagið og Knútur nokkur Kjartansson sá um að "planka" að þessu sinni og fórst það vel úr hendi.  Viljum við félagar þakka skemmtinefndinni fyrir vel heppnað kvöld og kokknum fyrir frábæra máltíð.  Hægt er að sjá fleiri myndir frá kvöldinu í myndasafni.

Meira


29.11.11

Jólafundur á föstudag 2. desember

Jólafundur á föstudag 2. desember
Á föstudaginn er jólafundur Kiwanisklúbbsins Eldfells og ætlar okkar ástkæra skemmtinefnd að færa mönnum gott í gogginn ásamt því sem mönnum verður færð jólahugvekja frá vini okkar sér Ólafi Jóhanni Borgþórssyni.  Jólabjórinn verður einnig á staðnum auk þess sem menn munu eiga þess kost að keppa í spurningakeppni og spila pool.

Meira


20.11.11

Plokkarinn frá Grími rann ljúflega niður

Plokkarinn frá Grími rann ljúflega niður
Haldinn var félagsmálafundur s.l. fimmtudag 17. nóvember og ákváðu kokkar klúbbsins að bjóða uppá Gríms-plokkfisk og er ekki að sökum að spyrja að hann rann þetta líka vel niður.   Baldvin Elíasson ræddi dagskrána framundan auk þess sem forseti og ritari kynntu störf ritara auk þess sem sýndar voru heimasíður Eldfells, Helgafells og umdæmisins og félgar hvattir til að fylgjast með starfinu á þessum stíðum.
Í myndasafni má sjá nokkrar myndir frá fundinum.

Meira


16.11.11

Eldfellingar snæða Gríms plokkfisk á næsta fundi

Eldfellingar snæða Gríms plokkfisk á næsta fundi
Grímur Gíslason, Helgafellsfélagi, sendi björgunarsveitarmönnum Landsbjargar á Sólheimajökli plokkfisk til að gæða sér á, er leit stóð yfir að sænskum ferðamanni.  Það eru auðvitað ekki nema heiðursmenn sem fá slíkar hugdettur og ljóst að Kiwanisandinn sveif yfir vötnum.  Við félagar í Kiwanisklúbbnum Eldfelli ætlum af þessu tilefni að panta nokkur kíló af Gríms-plokkfiski og snæða hann saman annað kvöld.  Fundurinn hefst í Opnum kerfum kl. 19:30 að venju og ætlar Baldvin Elíasson að útbúa Bernaise-sósu með þessu, en hann segir sósuna ómissandi með plokkaranum. 

Meira


15.11.11

Forseti og ritari sátu svæðisráðsfund Sögusvæðis

Forseti og ritari sátu svæðisráðsfund Sögusvæðis
Forseti og ritari lögðu land undir fót s.l. laugardag og sátu svæðisráðsfund Sögusvæðis á Hvolsvelli, en fyrirhugað var að fundurinn yrði í Eyjum.  Samgöngur komu hinsvegar í veg fyrir það.   Var farið yfir málefni Sögusvæðis og nýttu menn tækifærið og komu á framfæri skýrslu um stofnun Kiwanisklúbbsins Eldfells og því sem á dagana hefur drifið, bæði gott og slæmt. 

Meira


14.11.11

Fundur á fimmtudag kl. 19:30 í húsnæði Opinna kerfa

Fundur á fimmtudag kl. 19:30 í húsnæði Opinna kerfa
Næsti fundur klúbbsins er n.k. fimmtudag í húsnæði Opinna kerfa eins og síðast.  Farið verður yfir dagskrá vetrarins, þar sem heilmikið er framundan, ásamt því sem Hilmar Adolfs ætlar að taka áskorun Andrésar bakara um að planka á fundinum.  Poolborð á staðnum, kaldur á kantinum og allir í góðu skapi !

Meira


09.11.11

Líf að kvikna í snókerdeildinni

Líf að kvikna í snókerdeildinni
Nokkrir félagar komu saman á Snóker- og poolstofunni í Lágmúlanum í gærkvöld.  Spiluðu menn frá 19:30 inná ellefta tímann. 
Þeir sem mættu segja að þarna hafi verið sýndir snilldartakar á fyrstu æfingu og útlitið því nokkuð bjart fyrir veturinn í því efni.  Mættir voru Hilmar, Knútur, Baldvin, Guðjón og Óskar ritari.  Baldvin, Knútur og Hilmar léku á öðru borðinu og þeir Óskar og Guðjón á hinu.  Í stuttu máli þá sigraði Baldvin báða leikina sem splaðir voru í "threesome"-inu á öðru borðinu og Guðjón sigraði ritara vorn 2-1 eftir framlengingu og vítaspyrnukeppni.

Meira


04.11.11

Félagar fróðari um geimverur

Félagar fróðari um geimverur
Félagar eru nú mun fróðari um fljúgandi furðuhluti og farþega þeirra, eftir erindi sem Magnús Skarphéðinsson formaður Geimverufélagsins hélt á fundi klúbbsins í gærkvöld.
Reyndar var frásögn hans svo áhrifarík að nánast hver einasti farsími fundarmanna hringdi og fer engum sögum af því hvort þeir voru stilltir á "silent" eður ei.
Hafsteinn Gunnarsson, Helgafellsfélagi, heiðraði okkur með nærveru sinni og er talið að fundarefnið hafi orðið til þess að hann hafi gert sér ferð á fastalandið.

Meira


01.11.11

Fljúgandi furðuhlutir á næsta fundi í Eldfellinu

Fljúgandi furðuhlutir á næsta fundi í Eldfellinu
Næsti fundur er á fimmtudag 3. nóvember kl. 19:30 og verður fundað í húsnæði Opinna kerfa að Höfðabakka 9.  Vonandi gengur mönnum betur að rata þangað en á Víkingakránna, þó það hafi tekist á endanum !
 
Í fréttum undanfarna daga þá hafa verið margar fréttir um fljúgandi furðuhluti, bæði innanlands og útí hinum stóra heimi.  
 
 

Meira


21.10.11

Leynigesturinn fannst ekki á Víkingakránni

Leynigesturinn fannst ekki á Víkingakránni
Félagar í Eldfelli héldu á Víkingakránna á 2. fundi klúbbsins á þessu starfsári í gær.  Skemmtinefnd hugðist mæta með leynigest, en þegar til kom, fannst hann ekki.  Menn snæddu kjötsúpu og hlustuðu á varaformann skemmtinefndar, Baldvin Elíasson, rekja æviskeið Muammar Gaddafi, sem einmitt lét lífið í gær, sem og tölva Baldvins, sem þurfti skyndilega að enda ræðu sinnar þar sem vélin varð batteríslaus.  Hann leysti þó málið af stakri snilld eins og hann á vanda til.  Tveir félagar fengu fánastöng og koníaksflösku með hamingjuóskum frá Eldfellsfélögum en Knútur Kjartansson varð fimmtugur 2. október s.l. og Óskar Arason varð fimmtugur 2. janúar s.l. 

Meira


19.10.11

Kjötsúpa á fyrsta vetrardag

Kjötsúpa á fyrsta vetrardag
Næsti fundur klúbbsins verður haldinn á Víkingakránni n.k. fimmtudag 20. október og verður boðið uppá kjötsúpu að hætti hússins. Víkingakráin er að Hafnarstræti 1.. Á fimmtudag er fyrsti vetrardagur og því flott fyrir kalda karla að fá kjötsúpu í kroppinn. Munið að féhirðirinn okkar ætlar að "planka" kl. 19:15 og hver veit nema bakarinn og fasteignasalinn bregði á leik.
 
Fundur hefst 19:30.
 
Gestur fundarins verður XXXXXXXXXXXXX. Semsagt leyndó. Mætið og uppgötvið ;)

Meira


11.10.11

Fréttatilkynning frá K-dagsnefnd Kiwanisumdæmisins Ísland - Færeyjar.

Fréttatilkynning frá K-dagsnefnd Kiwanisumdæmisins Ísland - Færeyjar.
Kiwanishreyfingin afhenti styrki vegna Landssöfnunar Lykill að lífi á samkomu
í Ráðhúsinu á Alþjóðar geðheilbrigðisdeginum mánudaginn 10. okt. 
Það eru nú 40 ár síðan Kiwanishreyfingin hóf landssöfn til styrktar geðheilbrigðismálum með sölu K-lykilsins sem fer fram á 3ja ára fresti og er söfnunin nú í ár sú 13 sinn. Það var Eyjólfur Sigurðsson
Kiwanisfélagi og fyrrum heimsforseti KI sem kom með hugmyndina sem þróaðist í landsverkefni Kiwanis með landssöfnun og ávallt unnir kjörorðinu „Gleymum ekki geðsjúkum“
 

Meira


07.10.11

Grillað á fyrsta fundir starfsársins

Grillað á fyrsta fundir starfsársins
Stjórn Eldfells tók sig til og hóf nýtt fyrirkomulag matarmála klúbbsins með því að grilla ofaní félaga lamba-prime á fyrsta fundi starfsársins.  Fundurinn samþykkti að félagar tækju eldamennskuna að sér á starfsárinu enda nokkrir eðal heimiliskokkar í kúbbnum. 

Meira


27.09.11

Fyrsta starfsár Kiwanisklúbbsins Eldfells að hefjast -

Fyrsta starfsár Kiwanisklúbbsins Eldfells að hefjast -
Þann 6. október n.k. hefst fyrsta heila starfsár Kiwanisklúbbsins Eldfells eftir að hann fékk sjálfstæði sitt þann 6. maí s.l. 

Meira


09.05.11

KIWANISKLÚBBURINN ELDFELL STOFNAÐUR S.L. FÖSTUDAG

KIWANISKLÚBBURINN ELDFELL STOFNAÐUR S.L. FÖSTUDAG
Kiwanisklúbburinn Eldfell var stofnaður með pompi og prakt s.l. föstudag í Nausthamri, félagsheimili Kiwanisklúbbsins Helgafells í Vestmannaeyjum, sem jafnframt er móðurklúbbur Eldfells.  Verður vígslunni gerð nánari skil síðar, en þessi frétt er sett inn til að prófa fréttakerfi nýju heimasíðu Eldfells.

Meira