Hjálpum börnum heimsins
11.05.12

Styðjum okkar menn !

Styðjum okkar menn !
Hægt er að kaupa 8GB minnislykla með því að senda tölvupóst á eldfell2010@gmail.com, senda okkur skilboð á Facebook eða hringja í síma 866-5755.

Meira


08.05.12

Eldfell safnar fyrir sjúkraklefa varðskipsins Þórs

Eldfell safnar fyrir sjúkraklefa varðskipsins Þórs
S.l. sunnudag varð klúbburinn okkar 1 árs og ætlum við að halda uppá það félagarnir með því að safna peningum til að útbúa sjúkraklefa nýja varðskips okkar Íslendinga, V/s Þórs.  Búa á klefann með þeim tólum sem til staðar þurfa að vera, svo hægt sé með góðu móti að taka við slösuðum eða veikum sjómönnum og öðrum þeim sem varðskipið bjargar úr lífsháska með einum eða öðrum hætti. 

Meira


30.04.12

Lengsti aðalfundur sem sögur fara af

Lengsti aðalfundur sem sögur fara af
S.l. föstudag fór fram aðalfundur Kiwanisklúbbsins Eldfells og ætli megi ekki leiða að því líkum að fundurinn hafi verið sá lengsti frá því Kiwanishreyfingin hóf störf sín.  Ákveðið var að halda fundinn þannig að honum yrði komið við í ferð í Garðinn þar sem Ási bæjó yrði heimsóttur og farið á herrakvöld Víðis í Garði og borðað þar og teigað.  Í upphafi ferðar var ljóst að það yrði nú lítill tími til að halda blessaðan aðalfundinn.  Brugðið var á það ráð að halda hann á Reykjanesbrautinni þar sem forsetinn stýrði rútu og fundi á sama tíma.  Tók fundurinn einhverja rúma 40 kílómetra og er ekki vitað um lengri fund í sögu Kiwanishreyfingarinnar án þess að það hafi þó verið kannað sérstaklega. 

Meira


25.04.12

Aðalfundur Eldfells í Garðinum á föstudag

Aðalfundur Eldfells í Garðinum á föstudag
Aðalfundur Kiwanisklúbbsins Eldfells verður haldinn í Garðinum á föstudag.  Rúta ferjar félaga frá Höfðabakka 9 (Opnum kerfum) stundvíslega kl. 18 og hefst fundur þegar við komuna í Garðinn.  Kynnt verður ný stjórn klúbbsins og greidd atkvæði um breytingar á lögum klúbbsins.  Einnig verður kynnt staðan á fyrsta söfnunar og styrktarverkefni Eldfells. 
 
Ási bæjó mun að sjálfsögðu taka á móti okkur og hyggst að fundi loknum fylgja okkur á herrakvöld Víðis í Garði þar sem við fáum lambalæri í gogginn og lofar Ási góðri stemmingu á staðnum, nema hvað !  Heimkoma er fyrirhuguð uppúr miðnætti verði bílstjórinn ekki týndur.
 
Eru félagar beðnir um að staðfesta þátttöku sína í fundinum með því að senda tölvupóst á eldfell2010@gmail.com og þeir sem komast ekki þurfa að boða forföll með sama hætti. 
 
Þetta er síðasti fundur vetrarins hjá öllum nema þeim sem skella sér til Eyja á vorfagnað Sinawik 5. maí. 

Meira


11.04.12

Félagsmálafundur á fimmtudag

Félagsmálafundur á fimmtudag
Félagsmálafundur verður í Kiwanisklúbbnum Eldfelli á morgun fimmtudaginn 12. apríl.  Hefst fundurinn kl. 19:30 en að sjálfsögðu opnar húsið fyrr þar sem menn geta skrafað og tekið í billiardkjuða.  Fundarstaður er sem fyrr í matsal Opinna kerfa. 
Á fundinum verður komið inná undirbúning aðalfundar ásamt öðru því sem snertir starfsemina hjá okkur á næstunni.  Framundan eru m.a. stjórnarskipti og hefur nú þegar komið fram ósk um að ný stjórn setji móturhjólagengið Drullusokka á dagskrá næsta vetur og fái í heimsókn Tryggva "Bacon", sem er fróðastur manna um slíka fáka.  Er ólíklegt annað en að vel verði tekið í þá beiðni
Það er því um að gera fyrir þá sem eru með góðar ábendingar um spennandi framsögumenn að láta vita um slíkt.

Meira