17.02.12
Félagar fróðari um Heimaeyjargosið 1973
Zóphónías Pálsson, Eldfells-félagi, mætti með Pál föður sinn á fund klúbbsins í gærkvöld og erum við félagar afar þakklátir fyrir þann happafeng. Við héldum að við vissum slatta um Heimaeyjargosið, en varð ljóst undir erindi Páls, að þar er langur vegur frá. Það er ljóst að það eru ótrúlegar aðstæður sem mynduðust í Eyjum í gosinu og eiga þeir menn er þar stóðu vaktina í hamförunum, mikinn heiður skilinn. Páll lýsti mjög vel öllu því sem þarna gerðist, hefði getað gerst og hvernig tókst að bjarga höfninni í Eyjum með hraunkælingu. Eftirminnilegast segir Páll þó að hafi verið sá samhugur góðra manna sem þarna var staddur við að bjarga því sem bjarga þurfti og bjargað varð.
Viljum við Eldfells-félagar þakka Páli fyrir að koma í heimsókn til okkar með þennan skemmtilega og fróðlega fyrirlestur um fæðingu Eldfells !
Meira
15.02.12
Páll Zóphóníasson gestur Eldfells á morgun, fimmtudag
Páll Zóphóníasson verður gestur okkar Eldfells-félaga á fundi klúbbsins á morgun, fimmtudaginn 16. febrúar kl. 19:30. Að þessu sinni eru gestir velkomnir og geta fengið máltíð á 2.000 kallinn og hlustað á Pál. Páll er að okkar mati ein af ljósmæðrum Eldfells, enda gegndi hann miklu hlutverki í Eyjum á meðan á eldsumbrotunum stóð. Þeir sem hyggjast mæta og eru ekki félagar í Eldfelli, þurfa að senda skilaboð til Kiwanisklúbbsins Eldfells á Facebook eða senda tölvupóst á netfangið eldfell2010@gmail.com áður en dagur rennur.
Félagar eru beðnir um að láta vita um forföll.
Meira
12.02.12
Flott þorrakvöld að baki
Kiwanisklúbburinn Eldfell hélt sinn annan þorrafund s.l. föstudag. Rúmlega 40 manns mættu á svæðið og er þetta stærsti fundur klúbbsins frá stofnun hans. Það verður auðvitað ekki látið þar við sitja og gert enn betur næst !
Meira
07.02.12
Þorrafundur Eldfells á föstudag
N.k. föstudag er þorrafundur Kiwanisklúbbsins Eldfells haldinn í húsnæði Kiwanisklúbbsins Eldeyjar í Kópavogi. Heiðraðir verða þeir stofnfélagar sem ekki komust við stofnfund klúbbsins á aðalfundi Helgafells s.l. vor. Fáni klúbbsins og stofnskjal munu verða afhent af þessu tilefni og mæta til þess verks bæði núverandi og fyrrverandi umdæmisstjóri ásamt föruneyti.
Bergvin Oddsson mun verða með uppistand þar sem hann kallar sig "Beggi blindi". Friðrik Óskarsson mun koma og spila á nikkuna sína þegar við mætum til fundar. Félagar geta tekið með sér gesti og kostar það 3.500kr eða fyrir matarkostnaði.
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku með tölvupósti á
eldfell2010@gmail.com eða hringið í Jón forseta í síma 866-5755.
Meira
23.01.12
Heimsókn í varðskipið Þór - myndir
Eldfells-félagar heimsóttu varðskipið Þór s.l. fimmtudag og tók Sigurðuar Steinar Ketilsson skipherra á móti félögum. Sýndi hann skipið hátt og lágt og bauð félögum uppá kaffi og sjónvarpsköku meðan þeir gripu tækifærið og héldu félagsmálafund í messa skipsins. Myndir frá heimsókninni má finna í myndasafni síðunnar.
Bestu þekkir fyrir gestrisnina fá skipherra Þórs og forstjóri Landhelgisæslunnar.
Meira